Indókína

INDÓKÍNA: Laos, Kambódía og Víetnam

+ 3ja daga dvöl Bangkok og möguleika á að bæta við nokkrum dögum á yndislegri strönd í lokin


Ferð til þessara landa, sem um árabil voru óaðgengileg ferðamönnum, er ógleymanleg öllum sem þangað koma. Boðið verður upp á 14 daga ferð þar sem heimsóttar verða helstu perlur landanna og möguleiki er á að bæta við 6 dögum í afslöppun á hinni ægifögru Hua Hin strönd í Thailandi í lok ferðar.

Thailand: Í upphafi ferðar munum við skoða stærstu Búdda hofin í Bangkok og fá grunnleiðsögn í Búddatrúnni til að auka skilning okkar á því hvað það er sem mótar hugsanir og hegðun stærsta hluta þjóða þessa heimshluta. Þar næst verður haldið í norður í hin Gullna Þríhyrning, hina frægu eituryfjasmyglleið, þar sem landamæri Thailands, Myanmar og Laos liggja saman. Þarna var fyrr á öldum mikil ópíumrækt, sem mótaði þjóðfélagið á þessu stað á þeim tíma. Við munum svo sigla niður Mekong fljótið í 2 daga.


Laos: „Land hinna milljón fíla“ er svo sannarlega ekki hefðbundinn ferðamannastaður Heimamenn eru gestrisnir og glaðlyndir og enginn fer frá Laos ósnortinn. Við heimsækjum frumstæð ættbálkaþorp og förum á fílsbak. Luang Prabang sem er lítil borg á heimsminjaskrá UNESCO. Borgin er friðsæl og þar má segja að tíminn standi í stað; munkar í appelsínumgulum kuflum, iðandi markaðir og sætur ilmur af kryddi og kaffi gefa borginni töfrandi blæ.

Kambódía: Stórfengleg musteri og hof sem eru stolt Kambódíu, enda Angkor Wat hofið í Siem Reap eitt stórkostlega mannvirki í heimi og á heimsminjaskrá UNESCO. Í Kambódíu munum við einnig heimsækja fólk sem býr við mjög sérstakar aðstæður í húsum sem sem eru umlukin vatni meiri part ársins og húsin standa á allt að 14 m háum stultum og kynnumst lífi bátafólks.


Vietnam: Hin unga og iðandi stórborg, Ho Chi Minh City, áður Saigon er iðandi af mannlífi og mótórhjólum ! Sérstaka tækni þarf til að komast yfir götur þar sem umferðin er gríðarleg, en heimamenn segja í gríni að það eigi bara að loka augunum og láta vaða ! Við heimsækjum eitt magnaðasta stríðsminjasafn í heimi sem er í borginni. Fyrir utan hana eru Cu Chi göngin, ótrúlegt mannvirki þjóðar sem gerði hvað sem var til að reyna að lifa að hið hörmulega stríði.
Thailand: Í lok ferðar verður dvalið í Bangkok í tvo daga, þar sem ómissandi er að kynnast stemmningunni á fljótandi mörkuðum og við njótum þess besta úr thailenskri matargerð, upplifum fjölskrúðugt mannlíf og næturlíf í borginni. Einnig verður gefið færi á að skreppa aðeins í búðir. Í Bangkok er hægt að finna allar tegundir af vörum, allt frá fjölbreyttum markaðsvörum þar sem prúttað er listilega um verð, upp í alþjóðlegar merkjavörur. Þeir sem kjósa að bæta afslöppun á strönd við ferðina, halda síðan til Hua Hin, en hinir kveðja þennan heimshluta að sinni.

Ferðatímabil: mars, apríl, maí Hópastærð 20 – 25 manns

VERÐ: 570.000 ISK á mann m.v.tvíbýli / + 135.000 ISK á mann sé valið að framlengja dvölina um 6 daga á Hua Hin ströndinni.


Innifalið: Flug frá Reykjavík til Bangkok, 4 styttri flug, allar ferðir skv. ferðaáætlun, gisting á 4* stjörnu hótelum, á þeim stöðum þar sem það stendur til boða, (annars besti hótelkostur á hverjum stað), daglegur morgunverður, 11 hádegisverðir, 2 kvöldverðir, innlendir leiðsögumenn á hverjum stað, aðgangseyrir skv. ferðaáætlun.

Íslenskur fararstjóri verður með hópnum allan tímann og aðstoðar við undirbúing ferðarinnar varðandi bólusetningu, tryggingar og visa inn í löndin.

ATH: Hægt er að sníða þessa ferð að óskum hvers hóps.

Photographer

USA

I'm a photographer from New York City & on my trip Iceland Europe Travel agent Asta made me feel right at home in Iceland! She planned the best sites for me to see: the northern lights boat tour, horseback riding through lava fields, snow mobile riding on volcanoes, hiking on a glacier, & had a great time staying the night at a cabin at the base of a volcano & glacier. I recommend this agency to anyone who loved adventure and wants to see the real Iceland! I can't wait to come back & visit soon. 

Customize your tour


Personal information


Travel information


Interests




Thank you for request, we will respond you in 24 hours.