Kína

Alþýðulýðveldið Kína

14 daga ferð til Peking, Xian, Guilin, Xiamen og Shanghai

Peking: Það er ólýsanleg upplifun að standa á Torgi hins himneska friðar og gamla keisarahöllin, sem kölluð hefur verið Forboðna borgin, er stórkostlegur minnisvarði um hið mikla keisaraveldi og er á heimsminjaskrá UNESCO. Árrisulir eiga þess einnig kost að heimsækja grafhýsi Mao Tse Tung. Farin verður dagsferð á Kínamúrinn og hægt að velja um að ganga á múrinn eða fara enn hærra í kláf. Á bakaleiðinni er komið við í Sumarhöllinni, sem einnig er á heimsminjaskrá UNESCO. Þess verður gætt að tími gefist til að heimsækja Sikimarkaðinn, þar sem reynir á listina að „prútta“, peking-önd verða allir að smakka sem heimsækjah öfuðborgina og nauðsynlegt er að slaka á í fótanuddi að kvöldi dags eins og Kínverjar sjálfir gefa sér tíma til.

Fyrir hópa sem það kjósa, sem hluta af námi eða námslokum og/eða í viðskiptalegum tilgangi, skipuleggur IET heimsóknir í stórfyrirtæki og stofnanir i bland við skoðunarferðir, allt eftir óskum þátttakenda, jafnt í Peking sem Shanghai.

 

Xian: Hægt er að velja á milli þess að fljúga eða fara með lest til þessarar fyrrum höfuðborgar Kína, en þar gefur að líta einn mikilfenglegasta fornleifafund 20. aldarinnar: „Army of Terracotta Warriors“: Þúsundir ævaforna leirhermanna og hesta, sem gættu grafhýsis fyrsta keisara Kína, 221-210 f. kr. Í borginni er auk þess ýmislegt framandi sem fyrir augu ber, m.a. gamli múslima hluti borgarinnar með fjölda smáverslana, markaðsborða og silkiverkstæði, þar sem sýnt er hvernig afurð silkiormsins er unnin og notuð i fatnað og værðarvoðir.

Guilin: Þessi borg er af allt öðrum toga en hinar fyrri, rólegri umferð og afslappaðri á allan hátt. Að morgni er ekið niður á bátabryggju til að hefja hálfsdags siglingu til Yanshuo eftir Li ánni þar sem hinir háu og sérstöku fjallstindar skaga uppúr. Við munum einnig skoða stórkostlegar dropasteinsmyndanir í hinum litskrúðuga Reed Flute helli. Á leið okkar um sveitir landsins ber fyrir augu okkar lítil þorp, endalausir te- og hrísgrjónaakrar og hefðbundnir kínverskir bóndabæir.

Xiamen: Amoy er annað nafn yfir borgina eða „lystigarða borgin“. Þetta er lítil borg á kínverskan mælikvarða og einstaklega þægileg og gaman að rölta þar um miðbæinn og skoða margbreytileika mannlífsins, ganga strandlengjuna eða meðfram vatninu og vinsælt er að láta sérsauma á sig jakkaföt eða aðrar flíkur á hagstæðu verði og ýmsir hafa gert góð kaup í sjóngleraugum í Xiamen. Siglt er út í hina sögufrægu Gulang Yu eyju og farin dagsferð til Nanjing héraðs í gegnum kínversk sveitahéruð, þar sem nánast hver lófastór blettur er ræktaður. Við heimsækjum Toulou hringhúsa þyrpingu og gamalt þorp – og það er sem við hverfum 50-100 ár aftur í tímann.

Fyrir hópa sem óska að heimsækja fyrirtæki í Peking eða Shanghai – verður dvalið í Xiamen í 2 daga en annars í 3.

Shanghai: Síðasti viðkomustaður ferðarinnar er oft kölluð París Asíu. Shanghai er viðskiptahöfuðborg landsins og nýtískuleg háhýsi gnæfa þar upp í tugatali. Þarna dveljum við í 2 daga. Við skoðum Oriental Pearl útvarps- og sjónvarpsturninn þaðan sem er útsýni yfir alla borgina. Í því húsi er einnig merkilegt vaxmyndasafn, sem sýnir líf og starf íbúa borgarinnar um lok 19. aldar. Við skoðum okkur um í Yu Yu garðinum, sem er Forboðna borgin í smækkaðri mynd. Þar gefst okkur kostur á kynningu á margs konar kínversku tei. Við heimsækjum einnig Jade Buddha Temple – þar sem er að finna 2ja metra jaðe Buddha styttu, en gefum okkur einnig tíma til að kíkja í búðir.


Ferðatímabil: apríl –október. Lágmarksfjöldi í hóp: 20 – 25 manns.

VERÐ: Frá 560.000 ISK á mann m.v. tvíbýli
90.000 kr. viðbótarkostnaður vegna einbýlis.


Innifalið: Flug frá Reykjavík til Peking og heim frá Shanghai, allt innanlandsflug/lest frá Peking til Xian, skoðunarferðir með leiðsögumanni, gisting á 4* eða 5* stjörnu hótelum með morgunverði og hádegisverði alla dagana, 2 kvöldverðir og allur aðgangseyrir og íslenskur fararstjóri sem auk annars aðstoðar við undirbúning ferðarinnar, veitir m.m. upplýsingar um vegabréfsáritanir, vátryggingar og bólusetningar og annað sem að undirbúningi ferðarinnar viðkemur.

ATH: Hægt er sníða þessa ferð að óskum hvers hóps. 

Wang Shu Jing

China

“The best vacation of my life - the nature in Iceland is breathtaking and if you haven´t been there, you should definitely have a visit to Iceland on your wish list.”

Customize your tour


Personal information


Travel information


Interests




Thank you for request, we will respond you in 24 hours.